Þjóðaratkvæði á leiðarenda

Punktar

Eðlilegt er að bera samning um Evrópuaðild undir þjóðina. Samninganefnd stéttarfélags ber kjarasamning undir félagsfund. Lýðræðislegt er, að samningamenn beri gerðir sínar undir umbjóðanda sinn. Hins vegar er ný sú hugmynd, að bera þurfi málið upp tvisvar: Fyrst, hvort ganga skuli til viðræðna, og síðan, hvort niðurstaðan sé í lagi. Með þeirri aðferð afsala stjórnvöld sér frumkvæðisrétti, segja bara pass. Ég held, að ekki þurfi neina þjóðaratkvæðagreiðslu um upphafið. Ráðamönnum nægir að lesa úrslit skoðanakannana með og móti viðræðum. Þjóðaratkvæði hæfir svo á leiðarenda.