Þingmenn með fortíð

Punktar

Við þurfum að losna við græðgisfólkið úr pólitík. Kúlulánafólkið, sem ætlaði að verða moldríkt út á ekki neitt. Fólkið, sem fékk prófkjör sín kostuð að mestu af hagsmunafé fyrirtækja hrunverja. Þurfum líka að losna við sofandi fínimannsliðið, sem lét spila með sig í stjórnum sjóða og nefnda, þar á meðal lífeyrissjóða og Þingvallanefndar. Nær auðvitað yfir flesta þingmenn Sjálfstæðisflokksins. En fleiri voru í vondum málum á græðgisárunum. Einkum eiga nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar erfitt með að losna við syndir úr fortíðinni. Almenningur ætlast til, að Alþingi sé skipað flekklausu fólki.