Skrítið er væl Tryggva Þórs Herbertssonar um of lág laun þingmanna. Eru ekki öll laun á Íslandi helmingi lægri en hliðstæð laun á Norðurlöndum? Afleiðing af hruni krónunnar og blöðruhagkerfi Tryggva Þórs, sem leiddi til hrunsins. Lítum líka á fjölmenni stéttarinnar. Hér eru 5.000 íbúar að baki hverjum þingmanni, en 40.000 í Bretlandi. Ísland gæti greitt þingmönnum hærri laun, ef þeir væru færri en þeir eru, til dæmis helmingi færri. Svo má líka líta á lögmál framboðs og eftirspurnar. Rosalegt framboð er af umsækjendum um störf þingmanna, en í ýmsum stéttum er umfram-eftirspurn, til dæmis hjá læknum.