Þeir leika lausum hala

Punktar

Enginn verndaði góðborgara landsins, þegar Bjarni Benediktsson og Sigurjón Sigurðsson léku lausum hala í kalda stríðinu. Enginn kom í veg fyrir, að hitlerjugend lögreglustjórinn brenndi símanjósnagögnin sín. Enginn dómari hafði bein í nefinu til að stöðva dólgana. Og fortíðin er komin aftur. Nú er ríkislögreglustjóri, sem hótaði manni lífláti og lét síðan týna gögnum frá vitnum málsins. Sem byggir upp einkaher Sjálfstæðisflokksins á kostnað ríkisins. Sem gætir hagsmuna Bláu handarinnar í Baugsmálum dagsins. Sem er líka undir verndarvæng dómsmálaráðherra. Hver verndar þig gegn dólgunum?