Þeir bugta sig og beygja

Greinar

Íslenzk stjórnvöld hafa enn bætt gráu ofan á svart í auðsveipni sinni gagnvart varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðuneytin falla hver um önnur þver í bugti sínu og beygingum.

Fyrst sagðist utanríkisráðuneytið trúa fullyrðingum varnarliðsins um, að ekkert hættulegt væri við farm þann, sem varnarliðið lét losa í Faxaflóa án leyfis. Hafa þó birzt í Dagblaðinu upplýsingar, sem gera slíka trúgirni langsótta.

Auðvitað mætti kanna málið með því að slæða upp farminn. En þá tekur sjávarútvegsráðuneytið sig til og lýsir því yfir, að það mundi hafa leyft losunina, ef um hana hefði verið beðið!

Aum er frammistaðan hjá vörðum íslenzkra laga á þessum sviðum.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið