Forsetar Alþingis reyta hár sitt í örvæntingu út af 25 milljón króna kröfu frá lögfræðistofu. Héldu, að hún mundi kosta 1,5 milljónir. Mishcon de Reya er fremur illræmd en fræg, einkum fyrir sýndarmennsku í réttarhöldum, enda notuð af frægðarfólki. Samt heimtuðu Framsókn og Sjálfstæðið aðkomu hennar að áliti á IceSave. Það kom í formi sprengju um leyniplagg, sem reyndist svo vera púðursprengja, tæpast 25 milljón króna virði. Ég legg til að Framsókn og Sjálfstæðið skipti kostnaðinum. Milli sín og InDefence-kampavínshópsins, sem hafði frumkvæði að komu hinnar skeleggu prump-málflutningsstofu.
