Þau bjuggu sjálf til siðleysið

Punktar

Jóhanna Sigurðardóttir og Gylfi Magnússon tala eins og Geir Haarde eftir hrunið. Slá um sig með marklausum frösum. “Ekki persónugera vandann”, sagði hann. “Stjórnmálamenn eiga ekki að handstýra fjármálakerfinu”, segja Jóhanna og Gylfi. Þau höfðu færi á að siðvæða fjármálin með skárra vali í Bankasýslu og Fjármálaeftirliti. Í staðinn var ráðið þangað sams konar siðlaust lið og áður var búið að ráða í banka og skilanefndir. Jóhanna og Gylfi geta ekki fríað sig af ábyrgð á siðlausu fjármálakerfi. Þau bjuggu það sjálf til með handafli. Yppta svo bara öxlum, þegar bent er á hroðaleg mistök þeirra.