Þak á eignarétti

Punktar

Góð er hugmynd dr. Herdísar Þorgeirsdóttur prófessors um þak á eignarétti. Svo mjög hefur ójöfnuður vaxið í vestrænu samfélagi, að komið er í óefni. Í Bandaríkjunum á auðurinn þingmenn og forseta. Wall Street á til dæmis Barack Obama. Ójöfnuður hefur vaxið hér sem annars staðar. Hann verður til á þann hátt, að menn búa til ímyndaða peninga í blöðruhagkerfi að hætti Davíðs og Geirs. Síðan skipta menn ímynduðu peningunum yfir í raunverulega peninga og láta almenning borga rústirnar. Stóreignir yfir milljarð króna eru að mestu leyti stolið fé með þessum hætti. Við þurfum að setja þak á þjófnaðinn.