Upplýst er, að Gunnar Waage, þekktur ofstækisbloggari á hægri jaðrinum, sá um aðferðafræði IceSave bænarskrárinnar. Hann tók staðfestingarþáttinn úr sambandi. Hann tók úr sambandi öryggisvara gegn fjöldaskráningum úr öðrum skrám. Játar þetta sjálfur í bloggi sínu. Fölsunin er því ekki beint Frosta Sigurjónssyni að kenna. Um þetta hneyksli má endurtaka það, sem ég hef áður skrifað um bænarskrána. Svona fer, þegar vel meinandi menn gera hagkvæmnis-bandalag við ofstækisfulla hægri kantinn. Ofstækismenn ráða nefnilega ekki við puttana sína, þegar þvinga þarf undirskriftafjölda upp í hentugar tölur.