Loforð Geirs Haarde og Björgvins Sigurðssonar á frægum Iðnó-fundum hafa fæst verið efnd. Kortaviðskipti virka að vísu innanlands, en ekki erlendis. Gjaldeyrisviðskipti eru í slíku tjóni, að það er eins og enginn átta mánaða gjaldeyrissjóður sé til. Yfirfærsla gjaldeyrislána hefur ekki verið efnd. Fólk fær rosalega reikninga.. Ég þekki aðferðina. Hún hét áður “Tékkinn er í póstinum”, nú “Tölvan bilaði”. Þeir eru að útvega sér frið til næsta dags. Ég trúði ekki loforðum þeirra, trúi enda ekki einu orði pólitíkusa. En sannir Íslendingar trúa frá degi til dags og skilja ekki neitt í neinu.