Tapað stríð við hugsunarhátt

Punktar

Nýjasti heilaspuni CIA leyniþjónustunnar segir, að Bandaríkin séu að vinna stríðið gegn Al Kaída. Blaðamaður Bretlands númer eitt, Robert Fisk hjá Independent, segir það tóma vitleysu. Hryðjuverkin halda áfram svo lengi sem fjölmennt bandarískt herlið er í Miðausturlöndum. Sjálfsmorðsárásir eru daglegt fyrirbæri einmitt núna. Al Kaída er hugsunarháttur, ekki her. Þú getur ekki farið í stríð við hugsunarhátt og unnið. Án nokkurs árangurs er bandarískur her núna í Pakistan, Afganistan, Írak, Jórdaníu, Tyrklandi, Egyptalandi, Alsír, Tadzikistan, Sádi-Arabíu og furstadæmunum. Unnið stríð?