Brynjar Níelsson er hugmyndafræðingur íhaldssamra skoðana. Frægastur fyrir öldruð viðhorf í kynferðismálum: Vandamál karla, sem neyðast til að nauðga konum, sem hætta við ástarleik, áður en kemur að samförum. Þetta er þekkt vandamál karlaveldis. Einnig fer gribban Eva Joly í taugar Brynjars. Enda setti hún á hvolf gamalgróið valdakerfi, sem felst í, að refsilaust sé, að yfirstéttin ræni aumingjana. Fylgismenn hans í stétt lagatækna gráta mjög, að skilanefndir séu hranalegar í umgengni við fínimenn. Pirringur dagsins er Stofnun Evu Joly, sem Brynjar Níelsson lagatæknir finnur allt til foráttu.