Hvað er að sýslumanninum á Ísafirði, spurði ég mig. Sú tíundaði í sjónvarpi ótal lagagreinar, sem aumur Egypti hafði brotið. Hann var í farandsölu með smámyndir og annað rusl, sem fólk vill eiga. Hví er alltaf verið að ofsækja smælingja með lagagreinum? Vildu Ísfirðingar ekki ruslið, sem þeir keyptu? Sýslumaðurinn minnti mig á forstjóra Útlendingastofnunar. Stóð þarna keik í sjónvarpinu og útmálaði, hvað hún gæti kjöldregið Egyptann á marga vegu. Er engin sál í þessum embættismönnum, sem Björn Bjarnason hefur ráðið? Hví geta sýslumenn ekki verið mannlegir eins og Júlíus Havsteen var á Húsavík?
