Sykur er eitur

Punktar

Nýlega upplýsti New York Times, að sykur væri eitur. “Toxic” sagði blaðið og getur það varla verið skýrara. Rannsóknir sýna, að barátta fólks við offitu fer út um þúfur, ef það borðar sykur. Hann truflar boðskipti líkamans og gerir fólk svangt. Flestir sérfræðingar, sem meðhöndla of feitt fólk, vara við notkun sykurs. Og tólf spora samtök gegn offitu hafa sykur efstan á lista sökudólga. Hafsjór slíkra upplýsinga hefur ekki áhrif á suma gamaldags næringarfræðinga, sem telja sykur vera hentugan og ódýran orkugjafa. Einn þeirra er Ólafur G. Sæmundsson, sem oft lofar sykurinn. Varið ykkur á honum.