Stjórnlagaþing hefur umboð til að gegna starfi, sem því var ætlað að gegna. Þingmenn þess einir geta ákveðið að fara á taugum og gera minna úr umboðinu en ætlast var til. Hafa fylgi að baki, tvöfalt fylgi Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum. Þeir, sem ekki mættu á kjörstað, afsöluðu kjósendarétti sínum í hendur hinna, sem mættu. Svo einfalt er lýðræðið. Framhaldið ræðst svo af starfi stjórnlagaþingsins. Ef það vinnur vinnuna sína eins og fólk gerir, verður það marktækt. Ef það einkennist af rifrildi að hætti Alþingis, verður það einskis virði. Valið er þeirra, sem kosnir voru, engra annarra.