Nýju náttúruverndarlögin, sem alþingi samþykkti einróma, brjóta þúsund ára hefð um réttarstöðu landeigenda og ferðamanna. Allt frá Jónsbók fornaldar til þessa dags giltu ýtarlegar reglur, sem byggðust á lausn fyrri þrætumála. Um reglurnar var friður í þúsund ár. Nú er vald yfir ferðum fólks fært til landeiganda og ráðherra. Að svikunum standa allir þingflokkar, þar á meðal Vinstri grænir og Píratar. Svandís Svavarsdóttir laug blákalt í Kastljósi, að breytingarnar væru alls engar breytingar. Þingmenn pírata hafa sér til afsökunar að fara lítið úr borginni og vita lítið um víðernin. En þeir hafa ekki enn beðizt afsökunar.
