Svíar í vondum málum

Punktar

Erfitt er fyrir Svía að komast í þá stöðu, að efast sé um dómskerfið þar í landi. Ég ber ekki skynbragð á lagagreinar, sem málarekstur gegn Julian Assange hvílir á. Veit samt, að ekkert hefur komið fram, sem bendir til, að hann verði framseldur frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Krafa um slíkt, ef hún kemur fram, byggist á allt öðru en dómsmálið í Svíþjóð. En umræðan um þetta sýnir almennt vantraust um allan heim á valdamönnum um allan heim, jafnvel á sænskum dómurum. Ég held, að valdamenn um allan heim ættu að hugsa vel og lengi um, hvernig í ósköpunum stendur á, að margir treysta engum lengur.