Sveitavargur skilgreindur

Punktar

Undir forustu Einars Kr. Guðfinnssonar leggja sveitavargar á Alþingi fram kröfu um samanburð fjárveitinga eftir þéttbýli. Gera ekki ráð fyrir, að afar og ömmur landsbyggðarinnar fái þjónustu á Landsspítalanum. Gera ekki ráð fyrir, að synir og dætur landsbyggðarinnar fái þjónustu í háskólanum. Munu reikna, að legudagur sé dýrari á Landsspítalnum en á elliheimilum þorpanna, sem sigla undir sjúkrahúsflaggi. Einarsliðið eru þannig ólíkt þingmönnum af höfuðborgarsvæðinu, að allur tími og öll orka fer í kjördæmapot. Einar Kr. Guðfinnsson er ekki þingmaður þjóðarinnar eða Íslands. Hann er sveitavargur.