Sullenberger grætur

Punktar

Gerald Sullenberger streitist við að merkja erfðabreyttu matvælin í Kosti og segist setja kostnaðinn út í verðlagið. Hann er einn um það. Aðrir kaupmenn eru með lítið af erfðabreyttu og þurfa því lítið að merkja. Þar með verður Kostur hlutfallslega dýrari í samanburði við aðra. Það er val Sullenbergers og hann á ekki að kenna öðrum um en sjálfum sér. Neytendur fá nú í fyrsta skipti tækifæri til að velja erfðabreytt matvæli eða hafna þeim. Þannig er neytendavernd, þótt Sullenberger þyki hún þvælast fyrir sér. Erfðabreyttur matur má gjarnan rykfalla á hillunum í Kosti. Fáir gráta með Sullenberger.