Straumurinn er að jáinu

Punktar

Nú er komin alvörukönnun, sem segir, að 61% styðji samninginn og 39% hafni honum. Það er afgerandi meirihluti. Athugum samt, að enn eru 36% óákveðin í könnun Fréttablaðsins. Ef við höldum þeim inni í myndinni, segja 40% já og 25% nei. Það eru hinar raunverulegu tölur. Þær segja mér, að of snemmt sé að taka tappann úr kampavínsflöskunni. Ástæða er þó til góðra vona og ég tel strauminn liggja í átt að jáinu. Mikilvægir álitsgjafar, sem sögðu nei fyrir ári, segja nú já. Lárus Blöndal og Ragnar Hall eru þar þungavigtarmenn. Því spái ég, að þjóðin þekki sinni vitjunartíma og taki skynsamlega ákvörðun.