Stormur eftir logn.

Greinar

Stjórnarhættir í Bandaríkjunum hafa áhrif um heim allan. Stafar það meðal annars af miklum pólitískum samskiptum þessa auðuga og fjölmenna ríkis við önnur ríki og af hinum samfléttuðu efnahagstengslum Vesturlanda. Pólitískar og efnahagslegar hræringar í Bandaríkjunum enduróma oft í nágrannaríkjunum, þar á meðal Íslandi.

Það er því eðlilegt, að nágrannar Bandaríkjanna fylgist vel með undirbúningi þess, er langvoldugasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna er kosinn á fjögurra ára fresti í beinni kosningu. Svo mikið er vald Bandaríkjaforseta heima og heiman.

Ford Bandaríkjaforseti á í erfiðleikum, ekki aðeins gagnvart flokki demókrata, heldur einnig innan síns eigin flokks. Ekki er víst, að hann nái útnefningu flokks síns og fremur ólíklegt, að hann næði kosningu, þótt hann yrði útnefndur

Ford er traustur og heiðarlegur maður, sem tók við völdum á erfiðum tímum, þegar almenningsálitið hafði hrakið Nixon og hirðmenn hans frá vðldum. Mörgum finnst hann ekki láta nógu mikið yfir sér og er það honum fjötur um fót á tímum sjónvarps og sigurbrosa. En hann hefur að mörgu leyti reynzt farsæll í starfi.

Hins vegar er Reagan, keppinautur hans í flokknum, hinn versti lýðskrumari, sem Goldwater hefur eindregið varað við. Reagan er kunnur fyrir að haga staðreyndum að vild í ræðum sínum og minnir að því leyti mjög á íslenzka stjórnmálamenn.

Litlar líkur eru á, að Udall eða Brown hljóti útnefningu demókrata, þó báðir hafi gott orð á sér. Þeir hafa styrk til að spilla nokkuð fyrir Carter og gætu hugsanlega leitt til þess, að á flokksþinginu yrði að ná samkomulagi um mann, sem ekki hefur verið í forkosningabaráttunni, til dæmis Humphrey.

Jimmy Carter er hins vegar kominn á þá fljúgandi ferð, að draga verður í efa að sameinað afl allra andstæðinga hans geti hindrað útnefningu hans á flokksþinginu. Hann hefur að vísu tapað á einstaka stað, enda verður hann að dreifa kosningabaráttu sinni um allt, meðan keppinautarnir skipta með sér verkum og keppa aðeins í ákveðnum ríkjum.

Um þessar mundir hlýtur að teljast líklegt, að Carter verðiútnefndur og hljóti síðan kosningu sem næsti forseti Bandaríkjanna. Í nágrannaríkjum Bandaríkjanna hljóta augu manna því að beinast að þessari halastjörnu, sem svo skyndilega hefur skotið upp á himininn þar vestra.

Þótt Carter brosi breitt, er hann enginn einfeldningur. Hann er harðgreindur maður og sérdeilis duglegur. Hann á gifturíkan feril að baki og er áreiðanlega hæfur til að gegna störfum forseta. Helzta vandamál hans er, hve einþykkur hann er og ráðríkur, og kann það að gera sambúð hans erfiða við þingið og aðrar valdastofnanir.

Nú um skeið hefur verið kyrrt í Hvíta húsinu. Þar mun hins vegar verða stormasamt, ef Carter heldur innreið sína. Of snemmt er að meta, hvaða áhrif það muni hafa á samskipti Bandaríkjanna við nágrannaríkin.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið