Stóri bróðir Ögmundur

Punktar

Meira en lítið er bogið við, að Ögmundur Jónasson og Björn Bjarnason séu sammála um forvirkar heimildir lögreglu. Æsingur Ögmundar hugnast mér ekki frekar en ýmis önnur sjónarmið hans undanfarið. Áróður gegn vélhjólaklúbbum gengur út í öfgar. Löggan og Ögmundur nota þá sem skálkaskjól. Forvirkar heimildir hafa verið misnotaðar alls staðar á Vesturlöndum. Fræg dæmi eru í Bretlandi. Heimildirnar eru notaðar til að grafa undan aðgerðasinnum og pólitískum sérvitringum. Það mun verða gert hér á landi. Forvirkni grefur undan lýðræði og frelsi. Hún er aðferð Stóra bróður við að stýra lýðnum.