Stóra mál tómu tölvunnar

Punktar

Fyrir ellefu mánuðum fannst tölva á Alþingi, sem enginn kannaðist við. Ekki talið svo merkilegt þá, að almenningi væri sagt. Enda var ekkert á tölvunni. Nú standa öll spjót á Helga Bernódussyni. Því telur hann heppilegt að segja ellefu mánaða frétt. Kenningin er, að tölvan sjálf hafi eytt gögnum á sér, þegar kveikt var á. Dylgjað er, að þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir hafi á vegum Wikileaks komið henni fyrir. Það eru órar manns í ógöngum. Órarnir voru teknir upp í “hálftíma hálfvitanna” í þingsal. Bjarni Ben og Sigurður Kári sökuðu Birgittu “James Bond” um landráð. Skrípó að hætti Alþingis.