Stjórnlagaráð já, Alþingi nei

Punktar

Nútímaleg vinnubrögð Stjórnlagaráðs vekja athygli erlendis, sjá til dæmis grein í dag í Guardian. Blaðið vekur athygli á notkun internetsins til að kalla á tillögur almennings. Allt önnur vinnubrögð en hjá pólitískum fíflum, sem bara kalla á tillögur hagsmunaaðila, samanber kvótamálið. Að bera saman Stjórnlagaráð og Alþingi er eins og að bera saman hvítt og svart. Að mestu er starf Stjórnlagaráðs málefnalegt. Þveröfugt við Alþingi, þar sem starfið er að mestu leyti þvættingur, kostaður af gráðugum hagsmunaaðilum. Tillaga mín er, að í næstu kosningum verði bara stjórnlagaráðsmenn valdir til þings.