Skeyti bandaríska sendiráðsins sýna, að Davíð Oddsson reyndi að taka völdin í landinu á síðustu vikunum fyrir hrun. Lenti í valdabaráttu við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í utanríkismálum. Carol van Voorst sendiherra taldi hann þar á hálum ís. Davíð þóttist hafa fengið þúsund milljarða króna lán Rússa, sem reyndist vera bull. Hann reyndi líka að fá bandarískt lán. Fékk til þess stuðning sendiherrans. Náði ekki fram að ganga. Síðast ruddist Davíð óboðinn inn á ríkisstjórnarfund og heimtaði þjóðstjórn. Þessar vikur sá hann allan heim sinn hrynja. Vildi taka völdin til að stýra fallinu og skrifa söguna.