Steinþór er spilltastur

Punktar

Landsbankinn er skýrasta dæmið um, að ekkert er breytt. Gamla og ógeðslega, sjúka spillingin er þar á fullu. Okkur birtist hvert dæmið á fætur öðru um, að bankinn hossar verstu bófum landsins. Hefur nú gert Jakobi Valgeir Flosasyni kvótagreifa kleift að losna við ofurskuldir sínar og komast yfir enn meiri kvóta. Steinþór Pálsson skilur ekki baun í siðferði, né heldur aðrir helztu yfirmenn bankans. Áður var búið að gefa Birni Leifssyni hundruð milljóna ofan á afskriftir upp á milljarð. Öll hegðun Landsbankans er svo helsjúk, að undrum sætir. Brýnasta verkefni þjóðarinnar er að reka Steinþór.