Stalínsk kosning

Punktar

Í Tsjetsjeníu var 99,5% kosningaþátttaka og 99% kusu flokk Pútíns forseta. Athyglisvert fyrir þá sök, að Pútín lét leggja Grozny, höfuðborg landsins, í rúst. Í Tsjetsjeníu er hann er hataðasti maðurinn. Samt fékk hann 99% stuðning þar. Það stafar af, að kosningar hjá Pútín eru eins og þær voru hjá Stalín í gamla daga. Allt er falsað. Enginn trúir niðurstöðum nema Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, sem var eftirlitsmaður. Umsögn hennar um kosningarnar eru lágpunktur skrautlegs ferils í pólitík. Pútín er hinn nýi Stalín. Meðan Valgerður hlustaði á Björk í útvarpinu.