Spillingar- og mútusaga

Punktar

Langvinn spillingar- og mútusaga af samskiptum Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps er hætt að vera skrípó. Ríkisstjórnin getur ekki leyft opinberu fyrirtæki að haga sér að hætti Landsvirkjunar. Þar þarf að moka út toppunum. Dæmið sýnir líka, að ófært er, að sveitastjórnir hafi mikil áhrif í skipulagsmálum. Það er ávísun á spillingu. Landsvirkjun borgar hreppum og hreppsnefndarmönnum fyrir meinta þjónustu og heldur með mútum uppi samkeppni við fyrirtæki, sem starfa á heiðarlegum grunni. Starfshættir Landsvirkjunar grafa undan góðum siðum. Þar ráða ferðinni siðblindingjar að hætti 2007.