Spilling skilanefnda eykst

Punktar

Forkastanlegt er lokað söluferli og önnur leyndarmál skilanefnda bankanna og annarra skiptastjóra. Tilraun skilanefndar Landsbankans til að velta stjórn Byrs er dæmi um þetta. Enginn fékk að vita um söluna á hlutafénu í Byr og augljóst var, að bankinn fjármagnaði hana. Því miður settu viðskiptaráðherra og forstjóri eftirlitsins kíkinn fyrir blinda augað. Það ýtir undir svipaða spillingu í skilanefndabransanum almennt. Fjárfestar kvarta um að fá ekki að vita um fyrirhugaða sölu eigna bankanna, aðeins útvaldir fái að vera með, jafnvel útvaldir framsóknarmenn. Ríkisstjórnin þarf að stöðva þetta rugl.