Sparifjáreigendum fórnað

Punktar

Eftir harða samninga neyðist ríkisstjórnin til að semja við Breta um sömu meðferð Íslendinga og útlendinga. Hún hefur aðeins efni á því á einn hátt: Svíkja loforð sitt um að vernda allt sparifé Íslendinga. Það mun reynast henni þungbært á heimavelli, því hún leysti eigendur peningamarkaðsreikninga út með 200 milljarða gjöf. Þeir hafa fengið 70-85% af inneign sinni, hversu há, sem hún var. Voru þeir þó í meiri gróðafíkn en venjulegir eigendur sparifjár. Eiga þeir síðari þá að fá 90-100% af sinni inneign? Það fá þeir ekki, því ríkisstjórnin telur sig verða að fórna þeim í tafli við Bretland.