Sótt að Actavis

Punktar

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur óskað eftir varanlegu framleiðslu- og dreifingarbanni á Actavis. Lyfjarisi Björgólfs Thor Björgólfssonar er talinn hafa brotið reglur um framleiðslu lyfja. Fimm sinnum hafi þrjár verksmiðjur lyfjarisans í New Jersey verið skoðaðar og fimm sinnum fengið aðvörun. Fundið var að misjöfnu magni á virku efni í sumum töflum og að hroðvirkni í framleiðslu. Bannið snýr ekki bara að verksmiðjunum í New Jersey, heldur líka að Actavis almennt og að stjórnendum þess. Actavis telur sig hafa komið framleiðslu í lag. Fréttastofan Associated Press upplýsti þetta fyrir helgi.