Sorpbrennsla varð musteri

Punktar

Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðar, og fleiri ráðamenn þar á bæ sitja í súpunni. Hafa réttilega verið fordæmdir fyrir sorpbrennslu, sem spýr díoxíni yfir nágrennið. Þögðu yfir eitruninni eins og mannsmorði. Nú upplýsist, að sveitarstjórnarmenn eru forhertari á Kirkjubæjarklaustri. Þar var sorpbrennslan gerð að musteri þorpsins, áföst við íþróttahús, skóla og sundlaug. Spúir þar meira díoxíni yfir allt og alla en sorpbræðslan á Ísafirði. Allir hafa gert lítið úr þessu, einkum eftirlitið, segir Eygló Kristjánsdóttir sveitarstjóri. Ódýrt svar þess, sem staðinn er að ósvinnu.