Ég fann ekki greinina um Sóley í Eimreiðinni. Hjálpsamir lesendur bentu á, að greinin birtist á blaðsíðum 336-341 í 5.-6. tölublaði 26. árgangs 1920. Þar færir Þorsteinn Björnsson rök fyrir, að Ísland eigi að heita Sóley. Þetta getur fólk séð á www.timarit.is. Aðrir bentu á, að Björgólfur Thor Björgólfsson eigi ekki lögheimili á Bretlandi. Síðast var vitað um hann á Kýpur, sem var skattaparadís rússneskra mafíósa. Kýpur er núna komin í Evrópusambandið og er að hreinsa til í skattamálum. Mafíósar og Björgólfur þurfa því að flýja annað. Hvert flýr fólk, sem hafnar skyldum sínum?
