Sök Samfylkingarinnar

Punktar

Samfylkingin ber fulla ábyrgð á útreið Íslands síðstu mánuði. Hún hefur verið í ríkisstjórn. Hún hefur átt utanríkis- og viðskiptaráðherra. Þeir hafa fengið nægar upplýsingar í sautján mánuði til að hindra vitleysuna. Hindruðu ekki IceSave ruglið, sem er helmingurinn af öllu tjóni landsins. Samfylkingin ber ábyrgð á, að samið er við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Bretland um meiri skuldbindingar en börn ykkar og barnabörn geta staðið undir. Kjósendur hafa samkvæmt skoðanakönnunum ekki enn fattað ábyrgð Samfylkingarinnar á gjaldþroti þjóðarinnar. En þeir munu fatta um síðir.