Hér varð bankahrun og krónuhrun. Svo er fallinni krónunni fyrir að þakka, að kvótagreifar soga til sín hagvöxtinn. Svo er máttlausri ríkisstjórn fyrir að þakka, að ofurlaunalið og fjárglæframenn soga til sín hagvöxtinn í skjóli bankaleyndar. Samt segir Jóhanna Sigurðardóttur á flokksstjórnarfundi, að þessir aðilar fái ekki að soga til sín hagvöxtinn. Það gera þeir einmitt nú þegar. Jóhanna segir, að svallveisla undir lúðrablæstri frjálshyggju-trúboðs sé liðin. Hún er einmitt í fullum gangi í skjóli bankaleyndar. Samt segir hún, að lífskjarasókn verði á forsendum jafnaðar. Ekkert bendir til slíks.