Södd lífdaga bíður útfarar

Punktar

Ríkisstjórnin er dauð úr öllum æðum. Ber ekki hönd fyrir höfuð sér. Bófarnir hafa tekið völdin í fjármálastofnunum, græðgin tekið völdin í Bankasýslunni. Stjórnarandstaðan heldur uppi hálftíma hálfvitanna á Alþingi og rífst út af öllu mögulegu og ómögulegu. Ríkisstjórnin hreyfir ekki legg né lið út af IceSave, þótt lánsfé og lágir vextir séu í húfi. Hún hreyfir ekki legg né lið út af Evrópusambandinu, þótt það sé hið eina, sem getur bjargað hinni þjóðrembdu þjóð. Einu ráðherrarnir á lífi eru Ögmundur og Jón Bjarnason, sem rugla út í eitt. Ríkisstjórnin er södd lífdaga og bíður útfarar sinnar.