“Þetta snerist um orðalag”, sagði Hörður Harðarson hjá Ölgerðinni í viðtali við DV. Kristall Plús sódavatn er villandi auglýst sem hitaeininga- og kolvetnasnauður drykkur. Neytendastofa hefur úrskurðað svo. Ölgerðin ætlar ekki að taka mark á því, enda snýst þetta bara um orðalag. Það minnir á, þegar Árni Johnsen gerði “tæknileg mistök”. Minnir líka á Tívolí-feðgana í Hveragerði, sem töldu “tæknilega nauðsynlegt” og “mannleg mistök” að falsa upplýsingar til veðbókar. Öll flokkast þessi ummæli undir orðið afneitun. Í þjóðfélagi nútímans ber æ meira á fólki, sem afneitar áreiti staðreyndanna.
