Snýst ekki um lagatækni

Punktar

IceSave snýst ekki um lagatækni, heldur um sátt. Við þurfum að endurreisa eðlileg samskipti við önnur lönd. Þurfum að endurreisa traust útlendinga á, að við séum siðað fólk, sem borgar skuldir. Þurfum að slökkva eldinn, þótt við höfum sjálf ekki kveikt í. Siðað fólk sigar ekki lagatæknum hvert á annað. Siðað fólk semur um niðurstöðu. Samningar eru æðri en lagatækni og langtum siðlegri. Þess vegna eigum við að segja já 9. apríl. Við eigum ekki að sitja heima, þótt við teljum þetta ekki okkar mál. Við eigum að leggja okkar lóð á þá vogarskál, að farsælast sé að staðfesta friðarsamninginn.