Brask Runólfs Ágústsson á Keflavíkurvelli var í hæsta máta óeðlilegt. Kann að hafa verið löglegt, en siðlaust var það. Löglegt kann að vera að fá lán upp á hundruð milljóna, sem almenningur gat ekki fengið. Runólfur var beðinn að útskýra þetta, en gat ekki. Runólfur var og er hluti gráðugrar stéttar, sem hugðist verða forrík út á brask. Honum finnst það hafa verið í lagi á þeim tíma. Mér fannst það ekki þá og finnst það ekki nú. Þeir, sem fóru í braskið á sældarárum Davíðs og Geirs, geta aldrei snúið aftur yfir brúna. Þeim finnst þeir vera fórnardýr breyttra viðhorfa. En þeir eru bara sömu skúrkarnir enn. Duga ekki til lækninga.
