Lee C. Buchheit er einn af sárafáum mönnum, sem er sérfróður í að þrúkka um skuldir ríkja. Himinhátt hæfari en íslenzkir emæbættismenn til að semja um IceSave. Ríkisstjórn Geirs Haarde vildi ekki þiggja þjónustu hans og valdi Baldur Guðlaugsson í staðinn. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar gerði nákvæmlega sömu mistök. Það var Guðfríður Lilja Grétardóttir alþingismaður, sem vann í því sumarið og haustið 2009 að fá Buchheit í þjónustu okkar. Síðan hefur naglinn verið vakandi og sofandi í málstaðnum. Með þeim árangri, sem við sjáum núna. Sýnir yfirburði snillinga fram yfir yfirstétt án verðleika.