Slagorð þjóðrembinga

Punktar

Ábyrgðarlausir þjóðrembingar ganga fyrir örfáum slagorðum: “Við borgum ekki skuldir óreiðumanna. Hlustum ekki á hræðsluáróður. Ekki kaupa aðgöngumiða að Evrópusambandinu. Við skulum standa í lappirnar. Við látum ekki Hollendinga og Breta kúga okkur. Heigulsháttur. Landráð” Þúsund sinnu á næstu vikum. Við skulum frekar hlusta á rök þeirra, sem voru andvígir fyrri samningum, en eru fylgjandi þessum nýjasta. Við skulum semja frið við umheiminn. Við skulum koma á eðlilegu sambandi við erlendar lánastofnanir. Við skulum lækka vexti á lánum okkar. Við sláum striki undir IceSave í sátt við guð og góða menn.