Skýrsludansinn kringum Vaðlaheiðargöng hófst sumarið 2010, þegar Kristján L. Möller stakk fyrstu skýrslunni undir stól. Þar stóð nefnilega, að veggjöld þyrftu að vera tvöföld sú upphæð, sem samgönguráðherra lagði til. Kristján þoldi auðvitað ekki skýrslu, sem sagði sannleikann. Því sérpantaði hann aðra niðurstöðu. Þá fóru óháðir aðilar að skipta sér af ruglinu. Þeir sýndu fram á alveg það sama og fyrsta skýrslan, sem Möller lagðist á. Þá var kominn nýr kjördæmispotari í stól samgönguráðherra. Steingrímur J. Sigfússon sérpantaði enn eina skýrsluna. Þannig eru vinnubrögð fjórflokksins ætíð söm og jöfn.