Skýrslan dýra

Greinar

Loðnulöndunarnefnd hefur sent frá sér ársskýrslu sína, prentaða í öllum regnbogans litum á dýrasta fáanlegan pappír með svellþykkri kápu Má reikna með, að þessi lúxus kosti yfir 200.000 krónur. Ef þessi skýrsla hefði verið fjölrituð í laus blöð og heft í hornið, eins og eðlilegt væri, hefði kostnaðurinn aðeins orðið lítið brot af því, sem hann var.

Þetta er ekki eina dæmið um óráðsíu opinberra stofnana á þessu sviði. Svo að segja daglega berast dagblöðunum lúxusskýrslur, sem kostaðar eru af fé skattborgaranna. Með því að banna þetta algerlega mætti spara milljónir árlega í ríkisbákninu.

Það veitti sannarlega ekki af að senda niður skurðarmenn til að skoða stofnanir ríkisins og afnema allan óþarfa fjáraustur, bæði á þessu sviði og á öllum hinum sviðunum, því að bruðlið verður fráleitara með hverju árinu.

Jónas Kristjánsson

Vísir