Enn reka fjölmiðlar áróður fyrir Tazer rafbyssum, enda er umboðið í höndum blaðamanns. Vísað er til rannsóknar bandaríska lögregluráðuneytisins. Þar segir, að byssurnar séu hættulitlar, ef rétt sé farið með þær. Samt hafa hundruð manna látist af þeirra völdum. Ef taka á mark á rannsókn hins hlutdræg aðila, má hugsa sér framhaldið: Löggur hafa handbók í skjalatösku. Þegar þeir lenda í uppþotum, draga þeir upp bókina og spyrja skrílinn: Eruð þið með hjartsláttartruflanir? Hver er þyngdarstuðull ykkar? Er hjartveiki í ættinni? Fáið þið verk fyrir brjósti? Og svo framvegis í tvo klukkutíma.