Skrítið, að fjölmiðlarnir skuli ekki birta neina alvöru skoðanakönnun um fylgi við stjórnmálaflokka. Ekki heldur neina um álit á stjórnmálamönnum og seðlabankastjórum og fjármálaeftirliti. Hrunið er orðið mánaðar gamalt og oft hefur verið kannað af minna tilefni. Kannski hefur það eitthvað með eignarhald á fjölmiðlum að gera. Ritstjórar fjölmiðlanna hafa greinilega fengið tabú í fangið. Ég fullyrði, að niðurstöður slíkra kannana yrðu mesta skúbb ársins. Samkeppnislögmál virðast ekki lengur ráða för fjölmiðlanna, ljósvakamiðla jafnt sem dagblaða. Pólitísk lögmál eru komin í staðinn.