Á brjálæðistíma Davíðs og Geirs myndaðist forréttindafólk, sem óð í bankana og fékk hundruð milljóna í kúlulán. Peningana hugðist það nota til að verða ofsaríkt á engum tíma út á ekki neitt. Þetta mislukkaðist hjá flestum og skuldir þeirra voru þjóðnýttar. Runólfur Ágústsson var einn þessara gæludýra kerfisins, kvígildi Samfylkingarinnar. Fékk hundruð milljóna til að stunda fasteignabrask á Keflavíkurvelli. Það fór út um þúfur. Hálfur milljarður var afskrifaður á þinn kostnað. En Runólfur fékk nýja vinnu hjá Samfylkingunni. Er umboðsmaður óráðsíumanna og kúlulánafólks. Skjaldborg Samfylkingarinnar.
