Skítugir puttar í gangverkinu

Punktar

Hér á landi hafa endurspeglast ítalskar ásakanir á evruna fyrir að hafa leitt til verðhækkana. Reynslan sýnir þveröfugt, verðbólga hefur nánast engin verið í löndum evrunnar síðan hún var tekin upp. Henni fylgir líka strangur Seðlabanki Evrópu, sem lætur ekki mínútu-pólitíkusa segja sér fyrir verkum. Evran er orðinn öflugasti gjaldmiðill heimsins. Það er hún, en ekki dollar, sem er hornsteinn viðskiptatrausts í heiminum. Íslenzkir landsfeður eru andvígir evrunni, því að hún meinar þeim að vera með puttana í gangverki fjármálanna. Við þurfum einmitt að losna við skítugu puttana.