Hefðbundin borgaraleg óhlýðni nær aftur til Mahatma Gandhi. Vörubílstjórar viku frá henni í gær með því að rífast við lögguna. Það gerðu menn Gandhis aldrei. Þeir höfðu aga á óhlýðninni og gættu þess, að allt ofbeldi væri af hálfu lögreglunnar. Æ síðan hafa óhlýðnir lagst í götuna, hlekkjað sig við mannvirki, en ekki rifizt. Því síður grýta þeir hlutum. Bílstjórar misstu sín mótmæli í hendur ungs fólks, sem kom aðvífandi og kastaði eggjum og grjóti. Í fréttum skorti aðgreiningu á vörubílstjórum og unga fólkinu. En skipulagslaus, anarkísk óhlýðni borgaranna er samt fín nýbreytni lýðræðis.
