Sagt er, að Alþingi komi saman í dag eftir langt jólafrí. Ég vissi ekki, að Alþingi væri lengur til. Altjend hefur það ekki komið að björgunarstörfum eftir gjaldþrot okkar. Nema hvað það felldi vantraust á ríkisstjórnina fyrir jól. Alþingi er eini aðili landsins, sem treystir ríkisstjórninni. Enda kemur þingið núna saman til að ræða tillögu Mgnúsar Stefánssonar um stofnun skipafriðunarsjóðs. Og tillögu Sigurðar Kára Kristjánssonar um sölu léttvíns og bjórs í venjulegum búðum. Núverandi alþingi hefur glatað tilverurétti sínum. Í næstu kosningum mega allir þingmenn þjóðarinnar missa sig.