Skilur ekki vantraustið

Punktar

Brynjar Níelsson lögmaður skilur ekki ástæðuna fyrir ráðningu Evu Joly. Telur, að íslenzkar stofnanir hefðu getað náð betri árangri með ókeypis samskiptum við erlendar og fjölþjóðlegar stofnanir. Áttar sig ekki á, að kjarni málsins er traust. Innlendir kerfismenn nutu ekki trausts og njóta ekki trausts. Einkum gildir það um fagbræður hans, sem við köllum lagatækna í flimtingum. Eva Joly er ekki frændi neins og ekki flokksbróðir neins. Hún geislar frá sér því trausti, sem þrotið var í samfélaginu. Til að endurvinna límingarnar í samfélaginu var nauðsynlegt að ráða hana til að spúla út.